Af hverju að bjóða þessa þjónustu?
Það má segja að loksins hafi eigandi vefir.is ákveðið að fara að bjóða upp á þessa þjónustu eftir margra ára reynslu af því að skoða staðnaða vefi sem ekki hefur verið sinnt með reglulegum uppfærslum á efni þeirra.
Kunnum við þetta?
Eigandi vefir.is er með yfir 20 ára reynslu í smíði, rekstri og efnisinnsetningu á heimasíður. Reynslan er því orðin ansi víðtæk og á ekki að vefjast fyrir okkur að setja inn efni á flest form vefumsjónarkerfa. Ef eigandinn sjálfur framkvæmir ekki verkið sjálft er það tryggt, sem hluti af gæðastaðli okkar, að viðkomandi aðili hafi alla kunnáttu og hæfni sem þarf, auk þess að hreins sakarvottorðs er krafist hjá öllum sem koma nálægt kerfum viðskiptavina.
Hver er eigandi vefir.is?

Vefir.is er rekið af Sérlausnum ehf. sem er félag í eigu Einars Á. Hrafnssonar.
Einar lærði fyrst Rafeindavirkjun og er með meistararéttindi í faginu í dag. Eins og svo oft vill verða þróaðist það svo yfir í tölvutengd mál og er hann nú einnig með BSc í Tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Einar er með yfir 30 ára reynslu af tæknimálum og drjúgan hluta þess tíma hefur hann komið nálægt heimasíðum og rekstri þeirra.
