Áminningarþjónustan okkar
Hvað er Áminnarinn?
Áminnarinn er þjónustan okkar sem hjálpar þér að muna eftir því að setja efni inn á heimasíðuna þína.
Hvernig virkar þetta?
Við sendum þér reglulega áminningu um að nú sé kominn tími til að uppfæra heimasíðuna. Þú getur valið um nokkrar tegundir áminninga:
- Tölvupóstur
- Facebook Messenger skilaboð
- SMS skilaboð
- Símtal
- Blöndu af þessu öllu
Þú ákveður svo í framhaldi hvort þú bregðist við þessari áminningu og setjir inn efni. Þú getur gert það sjálf(ur/t), fengið okkur til þess eða hvern sem er. Áminningarþjónustan er ekkert bundin við að það séum við sem setjum efnið inn.
Hversu oft fæ ég áminningu?
Almennt er miðað við mánaðarlegar áminningar. Ef þú vilt aðra útfærslu (t.d. vikulegar áminningar) þá endilega taktu það fram við okkur og við semjum um málið.
Get ég ekki bara gert þetta sjálf(ur/t)?
Jú, að sjálfsögðu. Lítið mál almennt að setja upp áminningu t.d. í dagatalshugbúnaði. Það getur hins vegar verið mun meira hvetjandi ef áminningin er að koma frá einhverjum öðrum.
