Skip to content
  • Netfang: vefir@vefir.is
  • Sími: 888-5228
  • facebook
vefir.is

vefir.is

Þinn vefstjóri

  • Heim
  • Þjónustan
    • Efnisinnsetning
    • Áminnarinn
  • Verðskrá
  • Um vefir.is
  • Hafa samband
  • Toggle search form

Efnisinnsetning

Nánari upplýsingar um efnisinnsetningar þjónustu okkar.

Fyrir hverja er þessi þjónusta?

Hefur þú aldrei tíma til að setja efni inn á heimasíðuna þína?

Ok, staðan er þannig að þú ert komi(n/nn/ð) með þessa fínu heimasíðu uppsetta. Hún lítur vel út og þú hæstánæg(ð/ur/t). Hálfu ári síðar er heimasíðan nákvæmlega eins. Ekkert hefur breyst. Þú sem ætlaðir sko aldeilis að sjá til þess að reglulega færi inn á hana efni. Þú bara einhvern veginn hefur aldrei tíma til þess að setja þetta inn.

Já, sko, þú ert sko ekkert einsdæmi.

Þetta er ein algengasta staðan á heimasíðum hjá einyrkjum og smáum fyrirtækjum. Heimasíðan staðnar. Oft það slæmt að gleymist að setja inn ný heimilisföng, símanúmer og netföng jafnvel.

Kanntu ekkert á þetta?

Er staðan þannig að þig langar að setja efni inn á heimasíðuna en hreinlega manst ekki, eða lærðir aldrei, hvernig það er gert?

Velkomi(n/nn/ð) í þann stóra hóp.

Þetta er líka mjög algeng ástæða þess að heimasíðan er aldrei uppfærð. Það er enginn til staðar til að gera það.

Hvernig leysum við þetta fyrir þig?

Þú færð okkur til að sjá um að setja efni inn á heimasíðuna þína.

Hvernig geri ég þetta?

Skrefin sem við förum eru nokkurn veginn svona:

  • Við gerum á milli okkar samning um að við sjáum um þetta
  • Við tileinkum okkur hvernig efni er sett inn á heimasíðuna þína og fáum nauðsynlega aðganga til þess
  • Þegar þú vilt setja inn efni kemur þú því til okkar
    • Með tölvupósti
    • Með SMS sendingu
    • Í gegnum Facebook Messenger
    • Með símtali (já það er líka hægt)
    • Með hljóðupptöku/myndupptöku í gegnum alla ofangreinda miðla
  • Við setjum efnið inn á heimasíðuna fyrir þig

Spurt og svarað

  • Hvað tekur langan tíma að setja inn eina færslu á vef?
    Það má alveg gera ráð fyrir að meðallengd sé um 1 klst. Það fer þó eftir því hversu mikið þarf að vinna efnið. Einnig getur það haft áhrif hversu oft er verið að vinna í viðkomandi vef. Því oftar, því smurðara verður þetta og tími í hvert sinn ætti að styttast. Lítið fréttaskot t.d. í kerfi sem við vinnum oft í þarf ekki að taka nema um hálftíma.
  • Takið þið að ykkur að búa til texta og slíkt?
    Já, það er ekkert sem kemur í veg fyrir það. Það þarf þó yfirleitt að gerast í samvinnu við verkkaupa þar sem besta þekkingin á vöru og þjónustu hvers og eins er að sjálfsögðu hjá verkkaupa.
  • Þjónustið þið öll fyrirtæki?
    Já í sjálfu sér gerum við það. Við einbeitum okkur þó mest að einyrkjum og smærri fyrirtækjum. Stærri fyrirtækin hafa frekar bolmagn til þess að vera með sitt eigið starfsfólk í þessum verkefnum. Við segjum þó að sjálfsögðu ekki nei við þeim stærri.

Sendu okkur línu ef þú hefur meiri áhuga á efnisinnsetningu

Please enable JavaScript in your browser to complete this form.
Nafn *
Ég hef áhuga á
Loading

Copyright © 2026 vefir.is.

Powered by PressBook Masonry Blogs