Það er ekki alveg sama hvernig efni er sett upp á heimasíðu. Kannanir hafa sýnt að allt að 80% notenda verða afhuga því að skoða efni heimasíðu ef það birtist ekki vel í tæki notandans.
Hvaða afleiðingar hefur það að efni birtist illa?
- Engu skiptir hversu mikla umferð heimasíðan fær ef hún er ekki tilbúin að birta efni sitt á notendavænan hátt.
- Heimasíða sem krefst mikillar vinnu af notanda við að skoða efni hennar fer sjálfkrafa í “nei takk” flokkinn.
Hvernig bætum við úr þessu?
Hægt er að gera kraftaverk með því að skoða heimasíðuna sína vel í hinum ýmsu tækjum. Maður finnur fljótt sem notandi ef tilfinningin er sú að það sé á einhvern hátt erfitt að kynna sér efni heimasíðunnar.
Ef upplifunin er þannig að maður vilji gera lagfæringar þá er ekki spurning um að það borgar sig að fara í þær lagfæringar.
